Hamborgarar

Þótt smashborgarar séu allt í lagi, grunar mig að hráefnið í þeim sé ekkert sérstakt. Aðferð fundin upp í fátækum héruðum Kentucky með því að skella stórri niðursuðudós ofan á kúlu af nautahakki til að fletja hana út svo hún passaði í brauðið.

Fékk minn besta borgara þessa árs á Hamborgarafabrikkunni við Borgartún. Morthens með frönskum og Pepsi Max. Bragðið felst í nýju og góðu hráefni. Rétt eins og Gordon Ramsey segir alltaf.

Cornell sjö

Svo flott hjá Jane Doe að fara í einkamál gegn þessum forréttinda vesalingum sem hópnauðguðu henni fyrir tveimur árum síðan á bræðravistinni þeirra.

Skrítið að hlusta á rök eins og að það sé þín eigin sök að vera étinn þegar þú færð þér sundsprett innan um krókódíla.

Ölvuð stúlka ákvað að strippa utandyra niður í miðbæ fyrir framan mig og fleiri karlmenn. Áttum við að hópnauðga henni? – NEI. Einhver kom með teppi og setti yfir hana og hlúði að henni eins og vera bar. Vissi að hún þurfti á aðstoð að halda en ekki hópnauðgun.

Hvað þá gengið sem vill að Jane Doe verði nafngreind eins og sjömenningarnir. Hefur hún ekki þolað nóg! Sorry með sjömenningana. Hefði sjálfur kosið að þeir hefðu notið nafnleysis fram að nýjum réttarhöldum, en karma er skrítin skepna.